ein

Þreyta... eða ólétta?...

Flökurleiki og tilfinningasemi hafa sett mark sitt á síðustu vikur hjá mér. Ég var orðin alveg sannfærð um að ég væri ólétt! Því fylgdi dálítill tilfinningarússibani en þrátt fyrir hversu stutt við Riddarinn höfum verið svona náin þá var þetta undarlega notaleg tilhugsun. Ég mannaði mig á endanum upp í að ræða þetta við hann og varð ekki fyrir vonbrigðum með hans viðbrögð. Hann tók þessu með mestu ró og fullvissaði mig um að hann stæði 100% með mér sama hvað ég vildi gera í málinu og að við myndum finna út úr þessu í sameiningu. Þegar til kom reyndist óléttan hugarburður einn og vonbrigðin komu meira á óvart en upphaflegar vangaveltur um hugsanlega fjölgun. Svona er maður skrítinn!

Flökurleikinn hefur ekki yfirgefið mig, við bættust bara túrverkir líka :( Ég hef líka verið ofsalega þreytt og orkulaus. Það hefur verið mikið álag á mér undanfarið sem getur spilað inn í en ég skil alls ekki þetta heilsuleysi og hef áhyggjur af því. Ég dreif mig í nudd í vikunni og það gerði mér rosalega gott. Ég fór svo aftur í gær eftir vinnu og fer einu sinni enn fyrir Páskahátíðina. Það og góð hvíld um hátíðarnar verða vonandi til þess að rétta stöðuna af. Annars verð ég að leita til læknis.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Veistu þetta er að mínu mati einn fylgikvilli þess að byrja að "lifa" aftur ef þú skiliur mig.  Þessi einkenni hljóma kunnuglega :)  Knúsog njóttu nuddsins í botn :) 

JEG, 5.4.2009 kl. 21:41

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Thad er einhver ömurleg flensa í gangi, magaverkir og hiti, ég tók thann pakann. Var líka ordin viss um ad ég vœri ófrísk, útthanin og fín, en nei sem betur fer er ég líka komin med túrverki ;o)

Vona ad thú fáir orkuna flót aftur, vona reyndar ad thú sért komin med hana nú thegar ;o)

Knús

Sporðdrekinn, 17.4.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband