5.2.2009 | 22:53
Gaman að lifa
Það er bara allt í gangi hjá minni. Búið að vera ansi pökkuð dagskrá og barasta allt jafn skemmtilegt. Aukavinnan sem ég tók að mér hefur gefið mér meira en ég hefði ímyndað mér, Borgarferðin var vel heppnuð, vinkonuhittingurinn skemmtilegur, saumó algjörlega dásamlegur.. hvað var það meira.. já ég fór á deit! Ég er m.a.s. búin að fara á deit nr 2 og er á leið á deit nr 3!!
Ég er að reyna að hugsa ekki of mikið þessa dagana, heldur gera meira af því að bara njóta og lifa lífinu án þess að hugsa of langt fram í tímann eða reyna endalaust að reikna út líkurnar á þessu eða hinu.
Lífið er dásamlegt ....
Athugasemdir
Gaman að heyra. Fyrst þegar ég fór að lesa þig varstu fölnað blóm en í dag þetta blóm að springa út og blómstra :-)
M, 5.2.2009 kl. 22:56
Go girl.
Með hækkandi sól kemur þetta allt saman og um að gera að njóta þess. Njóta þess að springa út.
JEG, 6.2.2009 kl. 00:12
flott að heyra ... vona að þessi braut sé komin til að vera
Rebbý, 7.2.2009 kl. 05:09
Yndislegt
Sporðdrekinn, 8.2.2009 kl. 02:53
Takk elskurnar mínar
Ein-stök, 8.2.2009 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.