5.8.2008 | 23:57
Til ömmu
Hvernig er hægt að þakka,
það sem verður aldrei nægjanlega þakkað.
Hvers vegna að kveðja,
þann sem aldrei fer.
Við grátum af sorg og söknuði
en í rauninni ertu alltaf hér.
Höndin sem leiddi mig í æsku
mun gæta mín áfram minn veg.
Ég veit þó að víddin sé önnur
er nærveran nálægt mér.
Og sólin hún lýsir lífið
eins og sólin sem lýsti frá þér.
Þegar að stjörnurnar blika á himnum
finn ég bænirnar,sem þú baðst fyrir mér.
Þegar morgunbirtan kyssir daginn,
finn ég kossana líka frá þér.
Þegar æskan spyr mig ráða,
man ég orðin sem þú sagðir mér.
Vegna alls þessa þerra ég tárin
því í hjarta mínu finn ég það,
að Guð hann þig amma mín geymir
á alheimsins besta stað.
Ótti minn er því enginn
er ég geng áfram lífsins leið.
Því með nestið sem amma mín gaf mér,
veit ég að gatan hún verður greið.
Og þegar sú stundin hún líður
að verki mínu er lokið hér.
Þá veit ég að amma mín bíður
og með Guði tekur við mér.
Höfundur: SiggaDúa2
Tekið af ljod.is með von um að mér verði fyrirgefin afnotin.
Athugasemdir
M, 5.8.2008 kl. 23:58
Fallegt, þér verður örugglega fyrirgefið að leyfa öðrum að njóta þessa ljoðs.
www.zordis.com, 6.8.2008 kl. 00:01
Virkilega fallegt
Ásgerður , 6.8.2008 kl. 00:15
Eins og talað úr mínu hjarta.
Knús á þig mín kæra.
JEG, 6.8.2008 kl. 00:42
Nú grét ég, þetta er svo fallegt
Sporðdrekinn, 6.8.2008 kl. 02:48
einstaklega fallegt ljóð sem hittir í hjartastað
Rebbý, 6.8.2008 kl. 08:20
Þér verður pottpétt fyrirgefið...vá! sendi þetta strax á frænku mína en við áttum svo yndislega ömmu Mjöööööög fallegt.
Svala Breiðfjörð Hauksdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 22:49
Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 12:33
Agnes Ólöf Thorarensen, 7.8.2008 kl. 23:23
Þett ætla ég að taka með mér inn í daginn. Takk
Fiðrildi, 11.8.2008 kl. 13:22
Takk elskurnar mínar
Ein-stök, 15.8.2008 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.