ein

Eitthvað fór úrskeiðis

.. þegar Maðurinn ræddi við Dótturina um daginn. Hún kom til mín í kvöld og spurði mig af hverju pabbi hennar þyrfti að flytja. Það varð fátt um svör hjá mér af ýmsum ástæðum. Ég var mjög þreytt eftir andlega og líkamlega erfiða daga og ég fann að ég átti erfitt með að fara út í einhverja viðkvæma umræðu á því augnabliki. Var aðallega hrædd um að ég myndi klúðra því eitthvað. Ég er ekkert smeyk við að gráta fyrir framan hana því fullorðnir gráta jú líka. En allavega.. hún fór að ræða þetta við pabba sinn og þá hafði hann greinilega ekki útskýrt fyrir henni ástæðu þess að hann væri að leita sér að húsnæði annars staðar Shocking Ég veit hreinlega ekki hvað hann sagði henni, eða hvað hann taldi sig vera að segja henni. En næsti klukkutími fór a.m.k. í sáran grát og ótal spurningar. Hún krefur okkur svara um AF HVERJU þetta sé svona og af hverju við getum ekki búið saman fyrst okkur þykir vænt hvoru um annað og ýmislegt í þeim dúr. Ég held að ég sé ekkert öðruvísi en aðrir sem hafa lent í þessari stöðu með það að líða eins og kjána yfir sumum spurninganna og eiga erfitt með að finna réttu svörin. Hvað segir maður við 10 ára gamalt barn í þessari stöðu? Við förum ekki að útlista fyrir henni samband okkar og þar af leiðandi er erfitt fyrir hana að skilja okkar hálfsoðnu útskýringar. Við reynum að vera hreinskilin og hún sér að það er allt í góðu á milli okkar, þ.e. engin leiðindi og enginn vondur við neinn.

Maðurinn er semsagt "heima" núna. Hann er í prófum þessa dagana og hefur því ekki gert neitt í því að kanna húsnæðismálin. Núna aftur á móti fer að koma tækifæri til þess. Það er ótrúlegt hvað jafnvægið á heimilinu fer úr skorðum þegar hann kemur Pinch Börnin voru rosalega ánægð að sjá hann en bæði hafa verið uppstökk og pirruð eftir að hann kom. Sonurinn fékk reiðiskast sem er sjaldgæf sjón, henti hlutum og öskraði. Dóttirin fékk smá tilfelli yfir smámálum. Andrúmsloftið milli okkar hjóna er samt mjög afslappað. Þar sem hann hefur verið í burtu alla vikuna og mikið að gera í vinnunni hjá mér þá greip ég tækifærið og vann aðeins lengur en vanalega. Kom því mjög þreytt heim og þá var hann búinn að versla inn djúsí kvöldmat og sukk fyrir kvöldið. Ands... ég GET ekki látið þetta vera þegar hann er hér - annars kaupi ég svona lagað bara ekki. Svo fitna ég og verð hundóánægð með mig og örg útí bæði mig og hann. En nú er ég að missa mig út um víðan völl.. ætla að hætta þessu pikki og drífa mig í rúmið til barnanna. Óska þess að þið eigið ljúfa nótt og góðan morgundag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æææjjj dúllan mín. Sendi fullan poka af knúsi og kreisti til þín. Skil þig að mörgu leiti svo vel. Já það er ekki auðvelt að útskíra skilnað fyrir börnunum. En eitt er jú málið að við erum fullorðin en þau börn og þau skilja svona þegar þau verða fullorðin sjálf. Þó að maður óski þess ekki að þau lendi í svona aðstæðum. Vona að aðstæður batin sem fyrst hjá þér góða mín svo að þú getir farið að einbeita þér að þér sjálfri.

Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 23:10

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Æjj Þetta er svo erfitt. En ég er alveg sammála, börn geta ekki skilið hvað er í gangi. Og þótt að við séu eins heiðarleg og við getum við þau og viljum als ekki plata þá er þetta bara of flókið mál. Ég held að einfaldar og skýrara skýringar séu bestar. Ekki að láta þau toga okkur út í að sjóða saman einhverja útsýringu sem að er bara að hluta til rétt en okkur datt ekkert betra í hug þá stundina.

Þetta er svona eins og þegar að það er verið að suða um eitthvað "Nei það er ekki í boði núna"

"Af hverju ekki mig langar svo"

"Vegna þess að ég sagði að það væri ekki í boði"

Ég veit ekki alveg það sama, en...

Það má sukka, ekki alltaf en.. það má. Ef að við sukkum aldrei þá erum við alltaf með hugann við þetta sem að okkur langar í, og verðum bara pirruð af því að við "megum" ekki borða það. Ekki vera að draga þig niður út af svona hlutum, njóta þess bara og svo er annar dagur á morgunn.

Ertu farin að far aftur í ræktina?

Góða nótt snúllan mín. Sofðu rótt í allan nót, dreymi þig fallega og Guð blessi þig. Megir þú vakna endurnærð og lífsglöð í fyrramálið

Sporðdrekinn, 9.5.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Ein-stök

Ókunnuga kona: Meðtók fullan poka af knúsi og kreisti og þakka kærlega fyrir mig  Nei það er ekki auðvelt að útskýra svona fyrir börnum og staðreyndin náttúrulega sú að maður á ekki að gera ráð fyrir því að maður geti í raun útskýrt fyrir þetta fyrir þeim. Ég hef alltaf sagt að það sem gerist á milli tveggja aðila sé eitthvað sem enginn annar geti nokkurn tímann skilið fullkomlega. Hvernig eiga þá börn að skilja það?

Sporðdreki: Ég held að það sé einmitt málið; einfaldar skýringar og eins skýrar og hægt er. Ég vil frekar ekkert segja heldur en að fara út í að segja eitthvað sem er ekki einu sinni rétt. Sem betur fer vorum við t.d. búin að ræða það okkar á milli að passa okkur á að vera ekki að gefa börnunum von um að við næðum saman aftur, þó við værum búin að viðurkenna fyrir hvort öðru að við bærum bæði ennþá smá von í brjósti hvað það varðar. En það er ekki sanngjarnt að blanda þeim inn í okkar tilfinningapælingar. Dóttirin spurði nefnilega pabba sinn í gær HVENÆR við myndum flytja saman aftur og hann fór þá að útskýra fyrir henni að við gerðum ekki ráð fyrir að það myndi gerast að við værum að skilja. Annars finnst mér hann oft detta í að finnast hann þurfa að útskýra hlutina út í hörgul fyrir börnunum á meðan ég er þeirrar skoðunar að sumar upplýsingar eru bara of miklar fyrir þau og of þung byrði fyrir þau að bera.

Auðvitað má maður stundum sukka og þegar maður gerir slíkt er að sjálfsögðu bannað að rífa sjálfan sig niður fyrir það  Maður á bara að njóta á meðan á því stendur og halda svo sínu striki.

Nei er ekki farin að fara aftur í ræktina. Hef samt afrekað það að ganga mikið og hjóla þessa dagana og röðin kemur að ræktinni á alveg næstu dögum.

Ég svaf reyndar alls ekki vel í nótt en svo furðulega vildi til að ég vaknaði samt eiturhress og kát í morgun  Maður er dálítið "skitsó" stundum! Held annars að allar þessar góðu hugsanir og kveðjur hafi bara skilað sér til mín þarna í morgunsárið  

Takk fyrir mig sæta mín

Ein-stök, 9.5.2008 kl. 21:11

4 Smámynd: Júdas

.......slæmu dagarnir skapa viðmið svo þeir góðu verða ennþá betri!

Júdas, 9.5.2008 kl. 23:37

5 Smámynd: Ein-stök

jú jú það gæti nú haft sitt að segja Júdas

Ein-stök, 10.5.2008 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband