28.4.2008 | 04:34
Helgin
Ég fór í heimsókn til Æskuvinkonunnar á laugardaginn og var þar fram á sunnudag. Það er langt síðan við höfum haft tækifæri til að spjalla svona og þegar ég fór heim fannst mér ég hafa fyllt vel á tankinn. Við töluðum fram á nótt yfir hvítvínsglösum, skemmtum okkur yfir gömlum ljósmyndum, skiptumst á fréttum af vinum og ættingjum og ræddum náin, persónuleg vandamál út í hörgul. Ofsalega var gott að tappa af við hana.
Dagurinn í dag einkenndist af gleði og þakklæti. Hnútarnir hafa verið að leysast einn af öðrum og lyfin eru komin aftast í lyfjaskápinn. Ég hitti foreldra mína í dag og það var mjög þægileg samverustund, enda fíllinn farinn úr stofunni. Þegar ég kom heim var mér tekið fagnandi af börnunum og Maðurinn dró fram rauðvínsflösku. Við áttum afslappaða stund með spjalli um helgina og skipulag næstu daga - engir hnútar. Buðum vinafólki okkar í mat og þar var mikið spjallað og hlegið.
Eini skuggi dagsins var þegar Dóttirin brast í grát í kvöld Ég missti af því hvað nákvæmlega kom þessari sorg af stað en eins og hún hafði tekið fréttunum af yfirvofandi skilnaði með mikilli ró, fyrr um daginn, þá allt í einu þyrmdi yfir hana. Ósköp skiljanlegt og við vorum alveg búin að búa okkur undir að nákvæmlega þetta gæti gerst. Við pabbi hennar töluðum bæði lengi við hana og reyndum að sannfæra hana um hvað við elskuðum hana mikið, að við ætluðum að gera okkar besta til að hún fengi að vera sem mest með okkur báðum, að málið snérist um samskipti okkar foreldranna og að enginn væri reiður við neinn.
Fjölskyldan sofnaði svo í einni kös í hjónarúminu. Ég vaknaði fyrir klukkutíma í hitasvækju, með kvíðahnút í maganum og skömmustutilfinningu gagnvart vinnunni sem ég ætlaði að sinna í gærkvöldi Er núna búin að drekka slatta af vatni, losa um hnútinn með öðrum aðgerðum og skrifa hér.. svo nú skríð ég aftur uppí rúm.
Athugasemdir
Gott að þú áttir yndæla helgi enda alveg nauðsynlegt að skipta um umhverfi og gera eitthvað allt annað. Einnig mikilvægt að geta rætt málin við annan aðlila.
Eins er greinilegt að andrúmsloftið á millin ykkar Mannsins er miklu betra. Öll spenna virðist vera farin og ykkur er farið að líða eins og vinum en ekki pari ??? ( mín skoðun )
Sendi þér helling af knúsi og kreisti mín kæra og njóttu þess að vera til.
Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 10:38
Það er svo gott að hitta svona vini, þetta hljómar sem yndisleg helgi. Fyrir utan sorg dótturinnar auðvitað. En þið maðurinn virðist svo samstíga, ekkert gæti verið betra fyrir börnin ykkar í þeirri stöðu sem að þið eruð í í dag.
Þetta hljómar svo vel "Fjölskyldan sofnaði svo í einni kös í hjónarúminu."
Knús til þín duglega kona.
Sporðdrekinn, 28.4.2008 kl. 15:43
Ókunna kona: ég held að það sé alveg rétt hjá þér. Við erum meiri vinir núna þegar svona margir erfiðir póstar hafa verið afgreiddir. Takk fyrir að fylgjast með mér, peppa mig upp og hughreysta
Sporðdrekinn: Sem betur fer virðumst við ná að vera vel samstíga og ég vona að svo verði áfram. Það gerir hlutina svo miklu auðveldari fyrir alla sem eiga hlut að máli. Já fjölskyldan í einni kös. Stundum er þetta svo notalegt að ég fer að efast um þessa ákvörðun
Knús til baka sæta mín 
Ein-stök, 28.4.2008 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.