25.4.2008 | 14:47
Nýtt upphaf
Ég stóðst ekki freistinguna.
Kíkti í heimsókn til "glöggrar konu" og drakk með henni kaffisopa. Ég fór ekki til að fá framtíðina skrifaða á blað, né draumsýnir um glæsta framtíð en þessi ágæta kona sá greinilega skilnað á milli okkar hjóna og erfiðleika sem hafa verið og eru á heimilinu. Hún sagði líka að það þyrfti sérstaklega að huga að öðru barninu, þ.e. Dótturinni því hún ætti mjög erfitt. Það hefði kannski ekki átt að koma mér á óvart því hún er eldri og skilur betur þær breytingar sem framundan eru auk þess sem hún er mjög næm á líðan annarra. Ég varð samt hissa. Ég var fyrirfram búin að byggja upp meiri áhyggjur gagnvart Syninum því hann er mjög háður bæði mér og pabba sínum og á t.d. mjög erfitt með að gista annars staðar en hjá okkur (eins og hjá afa og ömmu). En... það er betra að hafa öll skynfæri opin hvað þetta varðar. Maður veit aldrei hvað reynist hverjum erfitt eða hvernig það kemur fram.
En.. Það sem ég ætlaði nú að skrifa um var bleikrauða skýið sem bollinn bauð mér uppá. Svona líka innileg ást og hamingja í framtíðinni. (já ég veit "draumsýn um glæsta framtíð") En það sem mér fannst svo gott að finna hjá sjálfri mér eftir þessa heimsókn var þessi innri fullvissa um að allt yrði í lagi og að betri tímar bíði okkar allra. Sama hvort þeir tímar bíða bak við næsta horn eða þarnæsta.. þeir koma! Hún talaði um skilnað og erfiðleika og svo nýja ást. Hún tók það fram að hún gæti ekki sagt fyrir um hvort nýja ástin væri endurnýjun á sambandi okkar Mannsins eða nýr maður en það er líka annað sem mér fannst svo gott að finna hjá sjálfri mér. Ég er ekkert upptekin af því. Ég er mikil tilfinningavera og vil mikla nálægð við fólkið mitt og finna tilfinningaleg tengsl við það en því hefur ekki verið að heilsa í sambandi mínu og Mannsins lengi. Ég óska þess bara að hann finni sinn frið og leið til að takast á við sín mál. Hvort við eigum einhverja framtíð saman seinna meir eða ekki veit ég ekki, en ef hamingjan í því sambandi verður eitthvað á við það sem "glöggskyggna konan" sá í bollanum þá get ég ekki kvartað.
Núna erum við að fara á fund Ráðgjafans til að ræða næstu skref hjá okkur, umgengnismál og fleira. Þið megið gjarnan hugsa hlýtt til mín því mér finnst allt annað en auðvelt að finna flöt á þeim málum þó ég eigi ekki von á að það verði einhver leiðindi á milli okkar Mannsins hvað það varðar.
Athugasemdir
Já það er alveg ótrúlegt hvað sést í svona bollum og spilum. Einu sinni voru lögð Tarrot spil fyrir mig og var ég ekki að taka of mikið mark þar á en viti menn það var svoooo satt sem þar kom fram. Því miður. Ég vildi ekkí sjá það og hvað þá trúa því en það varð ekki umflúið. " skilnaður " " framhjáhald "
En sendi helling af góðum straumum til þín góða mín og ekki hafa of miklar áhyggjur af umgengninni fyrst um sinn það kemur allt og betra að finna það í rólegheitum en eitthvað svona fast-skyndi-verður-svona. Þurfið að finna ykkar hentisemi og gæti verið gott að hafa kannski börnin með í að ákveða. Minn drengur var sáttari með sjaldan og lengur en oft og stutt. Svo að þannig er það. (þó að ég myndi vilja að staðið væir betur við pabbatímana en gert er)
Þetta redast eins og oft er sagt. Knús á þig mín kæra og koss á kinn.
Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 15:19
alltaf gaman að heyra að framtíðin sé björt
passið ykkur á að setja upp einhverjar reglur varðandi börnin, en munið að hafa það ekki svo fast að ekkert megi útaf bregða án þess að allt fari í háaloft
vona að helgin verði góð hjá ykkur
Rebbý, 25.4.2008 kl. 17:59
Ást og umhyggja, já takk, það er alltaf gott að fá einhvern til að kíkja inn í framtíðina. Ég hef oft orðið hissa á því sem hefur komið fram.
Ég mun hugsa til þín Ein mín, þið eruð alltaf í mínum bænum og þar bið ég um stuðning og styrka fyrir ykkur öll
Sporðdrekinn, 25.4.2008 kl. 19:15
'eg verð að segja að ég öfunda þig ekki að vera í þessari stöðu ,þetta er alltaf svo leiðinlegt og erfitt og tekur mis mikið á blessuðu börnin...En ég mun hugsa hlýtt til þín og það verður að passa að detta ekki niður í neikvæðni.En baráttukveðja og koss og knús kv Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 26.4.2008 kl. 14:02
Einu sinni hitti ég mann sem var "skilnaðarbarn" og faðirinn hvarf að mestu úr lífi hans við skilnaðinn. Hann sagði að áður hefði hann átti tvo vansæla og fjarlæga foreldra sem hann náði engum tengslum við en eftir skilnaðinn átti hann eitt foreldri sem var hamingjusamt, naut þess að vera með honum og gaf sig algjörlega að honum. Í hans huga græddi hann á skilnaði foreldranna. Þetta er eitthvað til að hafa í huga því margir eru svo fastir í því að þeir séu að gera barninu/börnunum einhvern hræðilegan óleik með því að skilja.
Ókunna kona: ég held að það sé alveg rétt hjá þér að það er óþarfi að stressa sig á því að negla þessa hluti niður í dag eða á morgun. Sem betur fer er góður vinskapur á milli mín og Mannsins og við þekkjum börnin okkar best, svo þetta er spurning um að fylgja hjartanu og hyggjuvitinu og vera svo bara samstíga í því.
Rebbý: eitt af því sem við höfum mikið velt fyrir okkur er einmitt þetta með hvar við eigum að draga mörkin. Við erum komin á þá skoðun að á meðan við verðum ekki vör við að börnin séu að nota það sem "tæki" á okkur, þá sé heillavænlegast að þau fái að vita af því strax að við séum til í að hliðra til ef staðan er þannig. Ef annað þeirra t.d. saknar pabba síns "utan umgengnistíma" þá sé sjálfsagt að við reynum að bregðast við því eins og hægt er.
Sporðdrekinn: já það er alltaf gaman að kíkja aðeins inn í framtíðina
Sérstaklega á meðan maður passar að taka slíku ekki alltof alvarlega og "lifa eftir því". Takk fyrir krúttið mitt
Ég hugsa líka mikið til þín og þinna og bið fyrir ykkur líka (jafnt og okkur öllum). Ég hef mikla trú á mætti bænarinnar og bara því að góðar hugsanir og straumar skili sér til þeirra sem við hugsum til.
Allý: Takk fyrir
Þetta er ekkert öfundsverð staða, en ég veit líka að þetta gæti verið verra.. svo ég held í "Pollýönnuna" í mér 
Ein-stök, 27.4.2008 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.