ein

Tóm

Ég var búin að velta því lengi fyrir mér hvort ég ætti yfirhöfuð að skrifa eitthvað í dag. Finnst ég sjálf eitthvað svo agalega leiðinleg og ekki hafa neitt frambærilegt fram að færa. Það sem ýtti við mér var tilhugsunin um að seinna meir væri kannski hollt fyrir mig að líta til baka og rifja upp verstu stundirnar.

Ég er algjörlega tóm þessa stundina. Líður eins og ég hafi verið undin eins og tuska og ég veit ekki hvort ég er að fara eða koma, hvernig mér á að líða eða hvað mér finnst um nokkuð. Bara tóm.

Líklega er þetta aðallega þreyta eftir álag síðustu daga. Dagurinn í dag var undarleg blanda af skítkasti frá vinnufélaga, hrósi frá yfirmanni, aftöppun við Manninn og gráti í símann. Kannski ekki skrítið þó geymirinn sé tæmdur.

Er ekki rétt að reyna að týna til eitthvað jákvætt frá deginum?

  • Yfirmaðurinn sagði að ég væri fyllilega að standa við minn hlut í vinnunni þrátt fyrir álagið (fór á "teppið" sjálfviljug til að viðurkenna að mér þætti ég ekki vera að gera mitt)
  • Systir mín fullvissaði mig um að hjá sér væri opið bæði hús og hjarta og ég ætti alltaf víst skjól hjá henni. (Hljómar eins og sjálfsagður hlutur en mikið er gott að heyra slíkt þegar manni líður illa)
  • fékk tölvupóst sem var óvænt hrós og viðurkenning á verki sem ég lauk fyrir nokkrum árum og á þá kannski eftir að verða að einhverju meira spennandi í framtíðinni W00t
  • Maðurinn sagðist vera stoltur af mér fyrir að vera nógu hugrökk til að standa upp og gera eitthvað í málunum í stað þess að sætta mig við stöðuna eins og hún hefur verið undanfarin ár. Blush
  • Sonurinn sagði að ég væri besta mamma í heimi (af því að ég gaf honum muffins) Heart
  • Dóttirin var svo hjálpsöm og dugleg í morgun að enginn fullorðinn hefði getað staðið sig betur - vá hvað ég er stolt af henni! Heart
  • svo er frídagur á morgun Grin

Vá.. ætti að gera þetta oftar. Mér finnst ég bara alls ekki tóm lengur. Ætla að drífa mig í rúmið á meðan mér er svona hlýtt í hjartanu. InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég var tilbúin að skrifa eitt hvað til að styrkja þig eftir lestur fyrri helming færslunnar, en svo sá ég að þú sást bara alveg um það sjálf

Það er yndislegt að finna jákvæðnina streyma um mann og fylla hjartað ég vona að þú hlýja fylgi þér í drauma heima.

Ég fékk nú smá kökk í hálsinn þegar að ég las það sem að þú hafðir að segja um manninn. Þið hljótið bæði að vera yndislegar manneskjur til að hann geti sagt svona.

Sporðdrekinn, 24.4.2008 kl. 02:28

2 Smámynd: M

Gleðilegt sumar

M, 24.4.2008 kl. 11:58

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Gleðilegt sumar kæra bloggvinkona

Sporðdrekinn, 24.4.2008 kl. 12:58

4 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Já það er mjög gott að skoða og rifja upp góðuhlutina þegara að maður sér allt svart og ekkert er að ganga lengur.Því það er ótrúlegt hvað kemur upp eins og hjá þér núna þetta er flott hjá þér og gerðu þetta oftar..Gleðilegt sumar og hafðu það gott mín elska koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 24.4.2008 kl. 17:55

5 identicon

Gleðilegt sumar !!

Ætla ekki að tjá mig þar sem þú sagðir þetta allt og gott að þú átt svona góð  samskipti á þessum punkti í ferlinu við Manninn. Eitthvað sem ég þekki ekki.  Sendi helling af knúsi og kreisti í tilefni af sumri og því að þú ert að gera góða hluti greinilega. Nokkrir kossar líka.

Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 21:33

6 Smámynd: Júdas

Ég er ekki hissa á því að þú sért ekki tóm, þetta var góð lesning og einmitt það sem maður á að gera við þessar aðstæður.   Telja upp allt það jákvæða!

Farðu vel með þig-Gleðilegt sumar!

Júdas, 24.4.2008 kl. 21:58

7 Smámynd: Ein-stök

Takk elskurnar

Sporðdreki: Ég get alveg sagt fyrir mitt leyti að Maðurinn er alveg indælis manneskja og ég er afskaplega þakklát fyrir það. Hann sagði annað svo rosalega fallegt við mig. Sagði að eins og hann sæi þetta þá hefði ég tekið af skarið með að gera eitthvað og ég hefði ekki gert það af eigingjörnum ástæðum (þ.e. bara fyrir mig), heldur líka fyrir börnin og sig og að það væri varla til meiri ást en það.

Ein-stök, 24.4.2008 kl. 23:55

8 identicon

Mikið svakalega getur þú skilið sátt mín kæra. *knús og kreist* Rosalega falleg orð í þinn garð frá Manninum. Vertu sátt og stollt með að þetta er eitthvað sem ekki á að naga þig heldur styrkja. Þessi skilnaður er greinilega það besta sem þið gerið hvort öðru. Góða nótt og sofðu vært og njóttu þess að vera til. *kossar*

Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 00:08

9 Smámynd: Sporðdrekinn

 Fallegt

Sporðdrekinn, 25.4.2008 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband