ein

Sár

Hvernig stendur á því að sumir hafa slíkt vald yfir manni að þeir geta skilið mann eftir í sárum með einu símtali?

Ég var svo hrædd um að finna ekki stuðning úr þessari átt.. en vá hvað það er sárt að fá það staðfest


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebbý

getur það verið bara vegna þess að þessum aðila hafi brugðið og eigi bara eftir að jafna sig á fréttunum ?
vona það allavega, annars er bara að reyna að staldra ekki of lengi við þessa hugsun og frekar umvefja sig fólki sem á það skilið og sýnir vináttu og samhug.

Rebbý, 22.4.2008 kl. 22:35

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég er alveg sammála því sem Rebbý segir hér að ofan.

Eitt er oft erfitt að muna, en það er, að enginn hefur meiri áhrif á okkur en við leifum þeim.

Þú átt nóg með þínar tilfinningar og hugsanir þó að einhver utanaðkomandi geri þér ekki erfiðara fyrir. Vertu sterk stelpa og dugleg að sækja í jákvæðan og uppbyggjandi vinskap.

Knús til þín Ein

Sporðdrekinn, 23.4.2008 kl. 01:49

3 Smámynd: Ein-stök

Rebbý: ég held reyndar að það sé svolítið til í því hjá þér að viðkomandi hafi brugðið og eigi eftir að jafna sig. Veit líka að hluti af sársaukanum hjá mér á rætur í fyrrum samskiptum okkar. Veit líka að hluta af þessu máli öllu á viðkomandi aldrei eftir að skilja. Við bara hugsum ekki öll eins og erum ekki öll eins - sem betur fer. Takk fyrir þína bloggvináttu og þinn samhug

Sporðdreki: Mjög góður punktur. Gleymi þessu alltof oft. Hefði t.d. átt að vera búin að lesa þessa athugasemd hjá þér áður en ég hóf vinnudaginn í morgun því þá hefði ég kannski getað tekið betur á móti skítaklessunni sem ég fékk frá samstarfsfélaganum. Látið hana skella í gólf eða vegg í stað þess að leyfa henni að klínast framan í mig  Takk fyrir það. Ég ætla að gera mitt besta til að halda mig í uppbyggjandi og jákvæðum félagsskap.

Ein-stök, 23.4.2008 kl. 23:24

4 Smámynd: Sporðdrekinn

hahaha fyrirgefðu hláturinn en ég sé fyrir mér andlit með svona grænni slímklessu . Mamma sagði mér alltaf að hunsa þá sem vær leiðinlegir við mig, það er kannski þess vegna sem að ég á fá en góða vini hehehe 

Sporðdrekinn, 24.4.2008 kl. 02:21

5 Smámynd: Ein-stök

Ég sem sá fyrir mér SKÍTAklessu  

Ein-stök, 24.4.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband