17.4.2008 | 22:06
Spennufall og góð þreyta
Ég er alveg að sofna ofan í lyklaborðið en stóðst samt ekki freistinguna að skrifa smá.
Ég var óhuggulega þreytt í morgun og skil hreinlega ekki hvernig ég hafði það af að koma mér og börnum á rétta staði á réttum tíma. Ég hálf lufsaðist áfram í vinnunni í dag og get ekki sagt að ég sé stolt af vinnuframlagi mínu í dag. Að öðru leiti var dagurinn þó ágætur. Átti frekar langan tíma með börnunum og sá tími var vel nýttur. Maðurinn kom og við ræddum ýmislegt. Hann ræddi ýmislegt sem hann hefur ekki átt gott með að ræða áður og við grétum m.a.s. saman sem var ótrúlega losandi og gott fyrir okkur bæði. Ég er líka búin að afreka að hringja tvö símtöl í fjölskyldumeðlimi sem ég hef átt erfitt með að tala við undanfarið - bara einfaldlega vegna þess hversu aum ég er af mér. Í öðru tilfellinu brast röddin reyndar annað slagið því þar þurfti ég að opna fyrir tilfinningar sem ég hef reynt að halda í skefjum undanfarið. Það símtal gerði mikið fyrir mig.
Núna er ég bara alveg búin á því. Ofboðslega þreytt en það er góð, notaleg og værðarleg þreyta. Ég ætla því að drífa mig í háttinn og setja stefnuna á góðan morgundag.
Þakka ykkur sem skrifuðuð mér athugasemd við síðustu færslu. Ég er bara of þreytt til að svara hverri fyrir sig en .. þúsund þakkir og ég þigg gjarnan fleiri athugasemdir, ábendingar og pepp.
Athugasemdir
Já þetta tekur svakalega á.Maður þarf ekki bara að vinna mikið til að vera þreittur,maður getur líka verið þreittur þegar að það er mikið í gangi andlega það tekur svo mikkla krafta og orku frá manni.. Koss og knús mín kæra og farðu vel með þig Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 17.4.2008 kl. 22:22
Já það tekur á að losa um þessi mál og maður er gersmlega búinn á sálinni en það er svo gott að geta lokað þessu máli. Gott að þið gátuð spjallað og losað um hluti sem legið hafa á ykkur varðandi þetta þvi að það er nú það sem skiptir máli að skilja sáttur. Er betra allavega.
Sendi helling af knúsi og kreisti og ég veit að þetta lagast og dagarnir verða léttari eftir því sem að málin klárast í þessu ferli. Tala við alla sem málið varðar og finna lausn á öllu sem skiptir mestu máli. Nokkrir kossar í kaupbætir svona til að sína að þú getur þetta. Sofðu rótt og reyndu að hafa ekki of miklar áhyggjur af þessu þetta blessast allt.
Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 00:16
Það er ekkert sem gerir mann jafn þreyttan og andlegt álag. Mikið er gott að þið áttuð gott samtal. Megi morgun dagurinn þinn vera fullur af jákvæðri orku.
Knús á þig duglega kona
Sporðdrekinn, 18.4.2008 kl. 21:40
Allý: Það er víst ábyggilega rétt að andlegt álag er ekki síður þreytandi en það líkamlega - jafnvel meira þreytandi.
Ókunna kona: Takk krúttið mitt
Það er bara yndislegt að fá svona kveðju. Ég náði að skjótast inn á síðuna mína í dag og las athugasemdina þína en hafði ekki tíma til að skrifa neitt þá.. kveðjan þín yljaði mér um hjartarætur og spauglaust hjálpaði mér í gegnum daginn. Þúsund þakkir 
Sporðdrekinn: Takk fyrir það
Ein-stök, 18.4.2008 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.