ein

Val II

 

Einu sinni hafði ég mikið dálæti á bíómyndinni "Dangerous minds". Eitt af því sem mér finnst eftirminnilegasta úr þeirri mynd er þegar kennarinn Louanne Johnson skammar nemendur sína fyrir að segjast ekki eiga neitt val í lífinu. Hún bendir þeim á að þau eigi ALLTAF val. Ég ætla nú ekkert að fara með alla ræðuna hérna en mér verður oft hugsað til þessara orða þegar ég stend frammi fyrir einhverju vali í lífinu. Ég get jú valið um það í dag hvort ég verð áfram í þessu hjónabandi eða ekki. Einhverra hluta vegna virðist sú ákvörðun algjörlega vera mín megin. En hvað ef ég vel að halda núverandi stöðu áfram? Sambandið er ekki í lagi og við höfum bæði viðurkennt það. Við höfum líka reynt að gera eitthvað við því en það virðist ekki ganga. EF ég ákveddi að hætta við skilnaðinn og reyna að halda áfram, þrátt fyrir að sambandið okkar hjónanna sé fast í einhverju öngstræti.. hvað þá? Hvað ef ég legg mig alla fram við að halda öllum öðrum ánægðum og sáttum. Hversu lengi dugir það? Ég gæti allt eins staðið frammi fyrir því að eftir einhver x mörg ár tilkynni eiginmaðurinn mér að hann vilji skilnað og hvert er þá mitt val? Sætta mig við það eða?... eða hvað? segir maður NEI?

Af því að ég er nýbúin að segja að ákvörðunin um að hjónabandið sé búið virðist algjörlega vera mín megin þá gæti einhver sagt núna "En hvað með Manninn? Getur hann sagt NEI" Reyndar tel ég að hann geti það. Ég hef sagt honum það bæði leynt og ljóst að ég sé ekki að heimta skilnað af því að ég sé með einhvern annan í takinu. Ég er heldur ekki að fara fram á skilnað vegna þess að ég vilji hann ekki lengur. Það sem ég vel er að hafna aðstæðunum sem við lifum við í dag. Ég get ekki sætt mig við sambandið eins og það er í dag og ég get ekki lagað það ein. Ég vildi að ég gæti farið til baka og stillt sambandið á sama hugarástand, sömu nánd og sömu gagnkvæmu virðinguna og einkenndi það þá. En um það hef ég ekkert val. Í raun ætlast ég ekkert til að sambandið eigi að geta orðið nákvæmlega eins og það var í byrjun, en það er ekki ásættanlegt að það sé í þeirri stöðu sem það er í núna. Ég vel að sætta mig ekki við sambandið eins og það er núna, Maðurinn virðist hafa valið það sama.

Á morgun fer ég að hitta ráðgjafann. Þið megið gjarnan hugsa til mín. Undecided

P.s. "Sveitakelling" - ef þú lítur aftur hingað inn; takk fyrir að vekja mig til umhugsunar um það hvaða val ég hef. Smile Og... ég mæli með því að við köllum þig "Sveitaskutlu", "Sveitapíu", "Sveitakonu".. fyrirgefðu það er líklega bara mín smámunasemi en orðið "kelling" finnst mér svo agalega leiðinlegt Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð ! Ég var nú ekki viss um að ég ætti að vera að kommenta hér aftur en byrjaði í gær en hætti við ! Ákvað að bíða og sjá. Nú er ég byrjuð aftur að pikka og vil byrja á að byðjast afsökunar á ef ég hef sært þig. Ég hef sennilega verið of fljót á mér við kommentið sem ég skildi eftir mig. Þegar ég las svo sögu þína um fyrri sambandsslit var eins og ég væri að lesa mína sögu ja svona nánast. Ég lenti í helvíti stórum pakka sem bugaði mig nánast og það var bara fyrir ákvörðun hans. Ég átti ekki kost á að laga neitt því hann vildi það ekki.

Ég öfunda þig ekki að sitja í þessum sporum í dag því að það er ekki eins og maður sæki í að skilja ónei en stundum er það nú betra þó erfitt sé. Ef viljinn er farinn þá er þetta búið. Og það þarf 2 til svo að þetta gangi svo mikið veit ég. Ef hinn aðilinn er orðinn viljalaus og alveg sama er betra að hætta að svekkja sjálfan sig á að reyna að halda saman sambandi bara til að halda því saman. Öllum líður betur á eftir vittu til. Þetta er erfitt og tekur á en "það sem ekki drepur mann - herðir mann" hversu fáránlegt sem það hljómar á svona stundu.

Enn og aftur fyrirgefðu ef ég særði þig en það var ekki meining mín. Knús og farðu vel með þig. Sendi slatta af styrk fyrir viðtalið á morgun. Kveðja úr sveitinni.

Ókunnug sveitakelling/kona (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Ein-stök

Kæra ókunnuga sveitakona

Mikið var ég glöð að sjá kommentið frá þér. Ekki hafa áhyggjur af því að þú hafir sært mig. Eitthvað við orðalagið í fyrra kommenti "stuðaði" mig. Ég held að það hafi verið þetta með að ég hefði þó val, sem þú hefðir ekki haft -  því mér líður alls ekki eins og ég hafi svo gott val. En því er ekki að neita að ég hef val.

Mér þykir aftur á móti leitt að heyra þína sögu. Það var staðfesting á því sem mig reyndar grunaði; að sögur okkar væru ansi líkar. Mér leið á þeim tíma eins og ég hefði verið send beint niður í víti.. en eins og ég skrifaði í gær þá reyndist sú mikla ógæfa mér hin mesta blessun.

Það sem þú segir um stöðu mína í dag er alveg rétt. Ef viljann vantar hjá öðrum aðilanum þá er gagnslítið að berjast. Ég er líka ákveðin í að vinna í því að koma á ásættanlegri stöðu. Við eigum öll skilið að vera hamingjusöm.

Takk fyrir kveðju, knús og styrk. Og takk fyrir að skrifa mér aftur

Ein-stök, 9.4.2008 kl. 00:01

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Það var fallegt að lesa orða skipti ykkar, Ein og Ókunnuga sveitakona.

Ég mun hugsa til þín elsku Ein, ég sendi þér hlýja styrkjandi strauma, öruggt faðmlag og heita von um að þér gangi vel

Sporðdrekinn, 9.4.2008 kl. 03:13

4 Smámynd: Rebbý

þessi mynd hefur verið mér ofarlega í huga oft líka, skondið hvað hálf hallærisleg á köflum, amerísk bíómynd getur þó skilið eftir sig.
gott að þú ert að fara að hitta ráðgjafann, vona að það fari allt vel
athugasemdin mín í gær um að hafa ekki hleypt neinum svona nærri mér aftur er örugglega tekin vegna hræðslu, en ég hef reynt að sannfæra sjálfa mig um að ef einhver sem er mín verðugur kemur í líf mitt aftur þá muni ég opna á ný en er hrædd um að ég sé ekkert að opna augu mín fyrir því hvað ég þekki góða stráka.
tek mig á hvað það varðar núna

Rebbý, 9.4.2008 kl. 10:11

5 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 9.4.2008 kl. 16:47

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég vona að allt hafi farið vel

Sporðdrekinn, 9.4.2008 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband