ein

Val

Ég fékk komment um daginn frá "Ókunnugri sveitakellingu" sem er fyrsta kommentið sem ég fæ sem pirraði mig/stuðaði/gerði mig reiða.. veit ekki alveg hver lýsinganna passar best. Staðreyndin er sú að ég var næstum búin að svara í einhverju "fússi" en stoppaði sjálfa mig af og ákvað að hugsa málið aðeins betur.

Það sem mér sárnaði svona var þetta með að ég hefði val. Ég skil alveg hvað þú, kæra "sveitakelling" ert að fara með að þú hafir ekki haft neitt val. Ég var einu sinni í þeim sporum. Á þeim tíma vissi ég ekki betur en að ég væri í mjög hamingjusömu sambandi. Það breyttist á einni nóttu - bókstaflega. Nema... þegar grannt var skoðað voru auðvitað einhver merki um það í hvað stefndi en ég bara neitaði að sjá þau. ÉG var hamingjusöm og ríghélt í það. Ég upplifði þarna rosalega höfnun, verstu svik sem ég hafði orðið fyrir og ofboðslegan sársauka. Löngu seinna sá ég reyndar að ég fékk hreinlega áfall þessa nótt, líklega ekkert ósvipað og ef ég hefði lent í bílslysi eða orðið vitni að stríðsátökum. Hljómar kannski öfgakennt en áfall var það a.m.k. Ég man lítið sem ekkert eftir 2 vikum úr lífi mínu eftir þessa nótt, ég bjó ein og þar sem enginn gerði sér grein fyrir hversu alvarlegt ástandið var þá áttaði sig enginn á því að ég var bæði hætt að borða OG sofa. Þetta var skelfilegur tími og mitt í mínum sársauka í dag, þá finn ég ennþá meira til með sjálfri mér á þessum tíma. Einhvern veginn komst ég í gegnum þetta og í dag sé ég þennan skilnað sem einhverja mestu gæfu sem ég hef orðið fyrir á lífsleiðinni. Skrýtið!? Ástæðan er sú að þó ég sæi það ekki á þeim tíma, þá var ég löngu hætt að lifa lífinu sem sjálfstæð manneskja eins og gerist því miður mjög oft ef fólk byrjar mjög ungt í sambandi. Ég umgekkst bara vini sem voru kærastanum þóknanlegir, hafði sömu áhugamál og hann og ýtti til hliðar öllum draumum sem ekki pössuðu í okkar sameiginlegu tilveru. Ef þetta samband hefði ekki endað á þessum tímapunkti þá hefði ég líklega ekki ferðast eins mikið og raun ber vitni, ég veit að ég hefði aldrei farið til útlanda til að passa börn í heilt ár, ég hefði heldur ekki valið að búa í öðru landi í annað ár og ég hefði farið á mis við það að kynnast fjöldanum öllum af áhugaverðu og skemmtilegu fólki frá ýmsum löndum.

Svona er lífið stundum - það sem maður heldur að sé manns mesta bölvun í lífinu verður síðan manns mesta blessun.

Ég er orðin alltof margorð núna og svefnlyfið farið að segja til sín svo restin af þessari langloku verður að bíða þar til á morgun.

Annars var dagurinn í dag þokkalegur. Ég var samt frekar dauf í dálkinn og fann fyrir mikill þreytu og einbeitingaskorti. Ég afrekaði að sofna 3x í dag, í hádeginu, eftir vinnu og svo rétt fyrir kvöldmat! Sofnaði m.a.s. næstum því á fundi seinnipartinn!! Stærstu fréttirnar eru að ég hafði það af að panta tíma hjá ráðgjafanum W00t Fer þangað á miðvikudaginn.

Góða nótt.. framhald á "valinu" á morgun ... Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júdas

Góða nótt reiða kona.  Farðu vel með þig!

Júdas, 7.4.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Góða nótt vinan.....og dreymi þig vel..

Agnes Ólöf Thorarensen, 7.4.2008 kl. 23:06

3 Smámynd: Sporðdrekinn

 Já var það ekki á bara að halda manni í spennu dag eftir dag .  Þessi færsla stuðaði mig líka heilmikið, gott að þú komst þessu frá þér skutla. Frábært að þú sért komin með tíma hjá ráðgjafanum. Sofðu vært.

Sporðdrekinn, 8.4.2008 kl. 03:05

4 Smámynd: Rebbý

var að lesa þetta frá sveitakonunni ... skil að hluta hvað hún er að fara.
Þegar ég skildi kom heldur ekkert annað til greina en að skilja við manninn, en ég tel mig samt hafa haft val um að láta þetta ekki lita framtíð mína um of. 
Ég er sterkari einstaklingur eftir þetta, jákvæðari, sjálfstæðari og sé þetta núna sem blessun þó hann hafi verið yndislegasti eiginmaður í heimi meðan allt var í lagi.
Hef reyndar líka valið að hleypa engum svona nálægt mér aftur, sem er kannski ekki rétt val hjá mér, en sjáum hvað gerist í framtíðinni.

Rebbý, 8.4.2008 kl. 08:50

5 Smámynd: Fiðrildi

Það sem einn upplifir, upplifir einhver annar á annan hátt.  Ég held að það að takast á við sársaukann, viðurkenna hann og að vorkenna sjálfum sér . . . eru bara jákvæðir hlutir sem að þroska mann.  Þú átt örugglega rétt á að finna til og finnast þú svikin . . af honum, lífinu eða einhverju öðru.  Þú átt a.m.k mína samúð.  En mundu samt að sama hve sárt það er núna og kannski á morgun þá birtir alltaf til um síðir.  Þú munt læra af erfiðleikunum og koma sterkari út úr þeim.  Áttu góðan dag og láttu ekki einhverjar tilfinningalausar sveitajúnkur fara í taugarnar á þér

Fiðrildi, 8.4.2008 kl. 08:56

6 Smámynd: Ein-stök

Júdas: virkaði ég svona reið?  Hef kannski ekki komið því til skila en það svona "fauk í mig" þegar ég las kommentið fyrst.. en ég tók mér tíma í að hugsa og spá áður en ég færi að gera nokkuð í því að skrifa um það og rokið er löngu farið hjá.

Agnes: Takk fyrir það. Ég svaf fast og vel.. man reyndar ekkert hvað mig dreymdi

Sporðdreki: Það þýðir ekkert annað en að byggja upp smá spennu í þessari væluflóru allri  Hreinskilnislega þá átti ég ekki von á að ég yrði svona langorð en ég þurfti að koma þessu frá mér svona.. og ég á ennþá eftir að koma slatta frá mér áður en ég er búin að "afgreiða" þetta komment.

Rebbý: Ég er náttúrulega bara í miðju kafi ennþá.. gat bara ekki haldið áfram í gær. En kommentið hennar kom af stað miklu hugsanaferli í sambandi við það að hafa val og ég bara varð að setja það niður "á prent". Ég held að þú ættir að endurskoða þetta með að hleypa einhverjum að þér. Þrátt fyrir sársaukann ef hlutirnir ganga ekki upp, þá er það svo yndislegt þegar vel gengur og maður á ekki að gera ráð fyrir því að hlutirnir haldi áfram að fara illa hjá manni. Jah.. þá er a.m.k. illa komið fyrir mér eftir "margra-sambanda-tap".

Eigið góðar stundir í dag, ég klára þetta seinna í dag eða í kvöld.

Ein-stök, 8.4.2008 kl. 09:13

7 Smámynd: Ein-stök

Arna: Ég held að málið sé einmitt að maður á rétt á neikvæðu tilfinningunum líka. Á meðan maður dvelur ekki í þeim of lengi. Maður þarf að fá að verða reiður, bitur og sár í smástund, fara í gegnum ferlið og eins og þú segir.. læra af því. Svo afgreiðir maður það og heldur áfram. Takk fyrir

Ein-stök, 8.4.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband