7.4.2008 | 01:29
Í rósbleikri móðu
... voða ástand á minni. Komin á lyf bara og bullar tóma steypu
Nei nú er mín að spauga.. sem út af fyrir sig er batamerki - ikke?
Ég finn semsagt strax að lyfin hjálpa mikið. Ég er komin á bæði kvíðastillandi og svefnlyf (Sobril og Imovane). Ég finn ennþá fyrir kvíðanum þegar áhrifin fara að fjara út og áður en ég tek næsta skammt en svefnlyfið fer mjög vel í mig. Ég svaf djúpum svefni síðustu nótt en átti ekkert erfitt með að vakna þegar Dóttirin leitaði til mín í smá næturkrísu. Fann heldur ekki fyrir neinni "morgunþoku" eins og ég hef heyrt að sumir finni fyrir þegar þeir nota svefnlyf.
Ég ætlaði náttúrulega að vera LÖÖÖÖNGU farin að sofa núna en við Maðurinn duttum í spjall og það var bara rosalega gott spjall Bráðnauðsynlegt og gott. Mér líður svo mikið betur eftir það - þrátt fyrir að áhrifin af Sobril-inu séu ekki lengur til staðar (var a.m.k. komin með gamalkunnugan kvíðahnút í magann fyrir spjallið). En þetta gengur ekki.. frekari fréttir síðar í dag (mánudag)
Athugasemdir
Gangi þér vel.
Hólmdís Hjartardóttir, 7.4.2008 kl. 01:53
Mikið er gott að lesa þetta
. Ég segi eins og Hólmdís "Gangi þér vel" og mig hlakkar til að lesa meyra á morgun 
Sporðdrekinn, 7.4.2008 kl. 02:10
gott að þið áttuð gott spjall .... og gott að sjá að húmorinn er í lagi
Rebbý, 7.4.2008 kl. 16:47
Gangi þér vel..
Agnes Ólöf Thorarensen, 7.4.2008 kl. 20:28
Hjartans þakkir sætu stelpur
Ein-stök, 7.4.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.