5.4.2008 | 12:35
Heppin
Ég ákvað að tileinka heppninni færslu dagsins.
Þegar ég sat heima hjá mér í gærmorgun með tárin í augunum og bullandi samviskubit yfir að vera ekki í vinnunni þegar EKKERT væri að mér.. þá áttaði ég mig á því hvað ég væri heppin að eiga vinkonu sem hefði tekið af mér ráðin. Staðreyndin var náttúrulega sú að andleg líðan var svo tæp að ekkert þurfti til að tárin brytust fram. Ég fékk fallegt sms frá systur minni og felldi nokkur tár, ég rakst á gamlar myndir og flóðgáttirnar opnuðust, ég horfði á bíómynd sem snerti viðkvæma strengi og allt fór af stað aftur. Ég hafði náttúrulega EKKERT að gera í vinnuna í svona standi.
Ég var mjög lengi að koma mér í það að fara til læknisins og ef Krabbinn hefði ekki þrýst á mig og farið með mér.. þá hefði ég ekki farið. HEPPIN
Ég fór á læknavakt og var mjög stressuð yfir því á hvaða lækni ég myndi lenda en hvað haldið þið? Sá sem tók á móti mér var "gamli" heimilislæknir fjölskyldunnar minnar - HEPPIN Læknirinn sá er ekki bara alveg yndisleg manneskja og vandaður læknir, heldur þekkir hann alla fjölskylduna og alla okkar sögu svo ég þurfti afskaplega lítið að útskýra fyrir honum um stöðu mála. Skilnaður kom honum ekki á óvart því ég brotnaði niður á skrifstofunni hjá honum fyrir þremur árum og úthellti hjarta mínu.
Ég gisti hjá Krabbanum og við áttum góða kvöldstund. Áður en við fórum að sofa varð henni að orði að hún hreinlega sæi brúnina léttast á mér. Staðreyndin er að mér leið betur og betur eftir því sem leið á kvöldið, hvort sem ástæðan var kvíðastillandi töflurnar sem læknirinn gaf mér, samveran með Krabbanum, spjallið við lækninn eða fjarveran frá andrúmsloftinu heima. Líklega var það bara blanda af þessu öllu. Í öllu falli.. mér leið MIIIIKIÐ betur þegar ég fór að sofa - HEPPIN
Ég vaknaði til mun léttari tilveru í morgun. Sólin skein, fuglarnir sungu og yfir mér var meiri ró og friður en hefur verið lengi - HEPPIN Reyndar stóð sú stund ekki lengi yfir því þegar raunveruleikinn helltist yfir mér þá kom vanlíðanin aftur. En þetta kemur... Júdas segir það og ég trúi honum.
Athugasemdir
Hólmdís Hjartardóttir, 5.4.2008 kl. 12:38
gott að þú áttir allavega eina góða kvöldstund .... þeim mun fjölga stundunum
og svo mun styttast á milli þeirra og að lokum verður þú sátt aftur við tilveruna hvernig sem öll mál fara.
Rebbý, 5.4.2008 kl. 13:01
Takk Hólmdís
Rebbý takk fyrir það. Ég hef einmitt trú á að þetta verði ferlið
Fleiri og fleiri ánægjustundir og styttra og styttra á milli 
Ein-stök, 5.4.2008 kl. 13:50
Sæl þar sem ég rak hér inn nefið og las bloggið þitt langar mig að tjámig örlítið. Þekki þínar aðsæður ágætlega ja nema að þú hefur val. Hafðu það í huga og það er mikill kostur. Ég hafði ekki val í mínum skilnaði, varð bara að sætta mig við að skilja PUNKTUR. Fékk taugaáfall og allann þann pakka voða gaman. Og annað sem þú hefur er að þú átt vinkonur sem standa með þér og við bakið á þér. Ég hafði engann og talaði ekki við neinn. Sat heima í viku beit á jaxlinn og hélt svo bara áfram. Kvitt úr sveitinni.
Ókunnug sveitakelling (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 23:03
Jííí
Gott að þú áttir góðar stundir. Ég er ánægð með þig 
Sporðdrekinn, 6.4.2008 kl. 04:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.