ein

The only way is up :) ... isn't it?

Engin áföll í dag Smile 

Vinnudagurinn var ekki eins stressandi og ég náði meira segja að hlægja í góðum félagsskap í lok hans LoL 

Aftur á móti var vinnudagurinn í dag í lengra lagi og ég var mjög líkamlega þreytt þegar honum lauk. Pouty Sofnaði m.a.s. í rúman klukkutíma eftir að ég kom heim. Sleeping 

Maðurinn sýndi óvenjulegt frumkvæði í dag og fór í skattaskýrslugerð W00t Þá er a.m.k. einu verkefninu færra. Á morgun er ráðgjafinn á stefnuskránni. Hef ekki haft næði í vinnunni til að hringja og komin of seint heim til að ná á honum þá. En á morgun verður dagskráin ekki eins þétt og vonandi ekki fleiri óvæntar uppákomur.

Annað sem ég ætla að gera á morgun er að panta mér tíma í nuddi. Mér finnst líkaminn á mér vera allur úr lagi eftir veikindin og rúmleguna. Hlakka rosalega til að fá svona dekur og nostur við kroppinn Cool

Hef ekki haft mikinn tíma né orku til að velta fyrir mér skilnaðinum en hvort sem veikindunum er um að kenna eða ekki þá hef ég verið rosalega lítil í mér undanfarið og upplifað meiri sorg gagnvart skilnaðinum en áður. Í dag sækja á mig hugsanir um það sem var og ég er tætt og áttavillt. Hvernig gátu hlutirnir farið svona? Er þetta í alvöru búið? Er ekkert sem ég get gert? Ég hef satt að segja verið ráðandi aðilinn í þessu ferli frá upphafi. Ég hef reynt að ræða málin og ýta á umræður, tengsl og skilning. Ég heimtaði að við leituðum okkur hjálpar og ég tók nær einhliða þá ákvörðun um daginn að þetta væri búið. Maðurinn hefur eiginlega bara lufsast þarna með.. og samþykkt Errm Er þetta allt bara einn stór misskilningur hjá mér? Ég veit a.m.k. að ég á ennþá langt í land með að komast yfir þetta. Crying


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Elsku besta Ein,mín í guðana bænum vertu viss, áður en haldið er áfram með skilnað. Ef að þú heldur að það sé misskilningur í gangi, ræddu málið! Ég bið þig, ekki gefast upp á hjónabandinu þínu ef að þú ert ekki viss. Og annað að finna ráðgjafa er nr. eitt, tvö og þrjú núna. Hvað sem verður, veru viss um að skilja af hverju það gerðist.

Ég er rétt að byrja að lesa bók, en strax á fyrstu blaðsíðum vissi ég að hún myndi hjálpa mér með mig. Hún á eftir að hjálpa mér að skilja af hverju ég er eins og ég er, og ekki bara í hjónabandi heldur í flestum samböndum mínum. Hún opnaði líka augu mín fyrir því hvað allt sem að við gerum hefur djúp áhrif á börnin okkar.

Ég var að reyna að finna út hvort að búið sé að þýða hana á íslensku eða hvort að hún er seld heima en ég fann hana ekki á netinu. Ég vildi nefnilega gefa mömmu og pabba hana. Hún heitir:

Geting the love you wantA guide for couples. Eftir. Harville Hendrix, Ph.D

Ég ætla að senda þér kjark með hugsun til þín, kannski ég nái inn í svefn þinn og birtist þar sem falleg sýn.

Mundu hver þú ert og hvað þú villt

Sporðdrekinn, 3.4.2008 kl. 02:25

2 Smámynd: Rebbý

Þetta er rosalega stór ákvörðun að taka og geri ég ekki ráð fyrir að hún sé öllum jafn auðveld og hún var mér að lokum.
Verð samt líka að koma með smá dæmisögu úr vinahóp mínum. 
 
Vinahjón mín sem giftu sig mjög ung ákváðu fyrir nokkrum árum að skilja og það var ekki fyrr en lögskilnaður var að komast í gegn sem þau spáðu eitthvað meira hvað væri að gerast og fóru að hittast á laun.
Í dag eru þau búin að gifta sig aftur og eiga frábært samband, miklu betra samband en áður var og þakka þau sínu sæla fyrir að hafa gefist upp um tíma.

Hugsaðu málið vel áður en þú tekur lokaákvörðun og auðvitað verður Maðurinn að tjá sig um hvað hann vill ... ekki leyfa honum að vera bara áhorfandi í málinu.

Rebbý, 3.4.2008 kl. 09:41

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Þetta er falleg saga Rebbý

Sporðdrekinn, 3.4.2008 kl. 12:07

4 Smámynd: Ein-stök

Auðvitað á maður ekki að taka svona skref nema vera alveg 100% viss. Þetta er  búið að vera ansi langt ferli. Fyrir þremur árum gerði ég hálfgerða "uppreisn", settist niður með Manninum og útlistaði fyrir honum hvernig mér liði og hvað mér finndist vera að í okkar sambandi. Afskaplega lítið gerðist. Eftir það fluttum við, byrjuðum í nýjum störfum, misstum tvo nána ættingja og ýmislegt fleira gekk á. Síðasta haust var mér aftur orðið nóg boðið og þá heimtaði ÉG að við leituðum til ráðgjafa, sem við gerðum. Við höfum því farið til hans síðan í september. Þetta er því engin skyndiákvörðun hjá mér. En sambandið hefur staðið í 13 ár og við höfum átt margar góðar stundir en líka gengið í gegnum mikla erfiðleika.

Ég fór strax að leita að þessari bók sem þú talaðir um. Sá hana á ensku hjá Bóksölu stúdenta en ekki til eins og er. Ætla að kíkja eftir henni á Amazon. Hljómar mjög vel  Takk fyrir ábendinguna.

Já þetta er falleg saga Rebbý. Ég þekki reyndar mjög svipaða sögu nema mér hefur aldrei fundist "konan" í þeirri sögu vera virkilega hamingjusöm eftir að þau tóku saman aftur  Tek það fram að ég er ekki í þannig sambandi við þau að ég viti fyrir víst hversu vel sambandið gengur. En í sambandi við Manninn. Átti einmitt í samræðum í dag við eina vinkonu mína (Sálufélagann) og þá var hún m.a. að tala um að hún væri orðin verulega fúl út í hann. Henni finnst hann ósanngjarn gagnvart mér því hann kemur sér hjá að ákveða nokkuð og lætur mig um það. Það er ansi mikið til í því. Held ég reyni að ræða við ráðgjafann um þetta því ég næ bara ekki í gegn þegar ég reyni að ræða við Manninn.

Ein-stök, 3.4.2008 kl. 16:35

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Ein, vinkonur eru æði! Svo ekki misskilja það sem að ég segi hér. Vinkonur okkar vita ekki alla söguna, vinkonur okkar eru ekki við. Við einar getum vitað hvað við viljum, fáum og þráum.

Getur verið að maðurinn sé líka ráðavilltur? Kannski veit hann ekki hvað hann vill. Kannski langar hann að reyna að laga sambandið en aðeins ef að þig langar til þess.

Ég er ekki að draga þínar ákvarðanir í efa, heldur bara að reyna að koma með önnur sýn hérna inn. Ég veitt náttúrulega ekkert hvernig sambandið ykkar er eða var. Mig langar bara alltaf að öll dýrin í skóginum séu vinir

Ég vona að þú finnir bókina, og ef svo að hún gagnist þér vel

Sporðdrekinn, 3.4.2008 kl. 20:03

6 Smámynd: Ein-stök

Ég tek þessu ekkert öðruvísi en það er meint - sem er vel  Auðvitað er það rétt að vinkonur manns vita ekki alla söguna. Ég hef alltaf sagt við mínar vinkonur að það viti ENGINN nákvæmlega hvað gerist á milli tveggja aðila annar en bara þessir sömu tveir aðilar. Ég held reyndar að Maðurinn sé mikið meira en ráðvilltur. Ég hallast alltaf meir og meir að því að hann eigi alveg helling óútkljáð af sinni fortíð. En það er eitthvað sem ég er búin að reyna að ræða við hann frá upphafi okkar sambands (ekkert svona sínöldrandi yfir því sko.. bara rætt þetta annað slagið þegar tækifærið hefur komið upp í hendurnar á mér). Hann verður náttúrulega sjálfur að stíga skrefið til fulls og það sækir sér náttúrulega enginn hjálp á meðan hann er ekki tilbúinn til að taka á móti henni.

En við ræddum svolítið saman í kvöld. Ég eiginlega hrundi saman og er búin að gráta úr mér augun. Ég heyri ekki betur en hann sé búinn að ákveða það sjálfur að þetta samband sé búið. En núna ætla ég að koma mér í rúmið og vona að ég nái að sofna í minn grátbólgna og ráðvillta haus. Skrifa betur í fyrramálið um stöðu mála.

Ein-stök, 3.4.2008 kl. 23:58

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Æ Elskan mín, mikið finn ég til með þér. Ég mun senda þér ljós í hjartað Ein mín, ég óska þér góðrar nætur.

E.S. Ég sendi manninum líka, og ósk um að þið finnið bæði hverjar ykkar langanir og þrár eru.

Sporðdrekinn, 4.4.2008 kl. 02:07

8 Smámynd: Ein-stök

Takk mín kæra

Ein-stök, 4.4.2008 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband