30.3.2008 | 18:09
Lengi getur vont versnað
Ég vaknaði kl 7 í morgun og leit út var fljót að skríða upp í, breiða sængina upp fyrir haus og hreinlega skipaði líkamanum að sofna aftur.
Hef verið að stríða við þunglyndi í dag. Hef a.m.k. engin önnur orð yfir ástandið. Líður bara ömurlega. Er örugglega alveg skelfilega leiðinlegur félagsskapur og hef líka reynt að forðast það að troða öðrum um tær í dag. Í stuttu máli sagt þá vex mér ALLT í augum þessa stundina. Skattaskýrslan, skilnaðurinn, skipting á eignum, fjármál, hver á að vera með börnin hvenær, búseta.. hvað á að vera í matinn... já og þannig mætti lengi telja. Talaði við Krabbann áðan og held að ég hafi bara eyðilagt daginn fyrir henni.
Þegar ég hélt að þetta gæti ekki versnað.. hringdi síminn. Slæmar fréttir. Núna sit ég með kökkinn í hálsinum og tárin í augnakrókunum og bíð eftir annarri hringingu frá sjúkrahúsinu. Getur ekki verið að ég sé bara ennþá sofandi? Kannski vakna ég bara bráðum til tilveru þar sem sólin skín, fuglarnir syngja og lífið er leikur
Athugasemdir
Elsku vertu sterk

K.kv. E.
Edda (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:50
æi..þetta er ekki góð líðan,ég sendi þér faðmlag
og knús.
Agnes Ólöf Thorarensen, 30.3.2008 kl. 22:06
Kæra Ein, ég hefði sko vilja gefa þér annað orkuskot á sama tíma í dag.
Ég var að spá, hefur þú leitað til heimilislæknis og ath hvort að þunglyndislyf gætu hjálpað þér rétt á meðan að það versta er að ganga í garð. Oft eru hugsanir okkar bara í hringa vitleysu og við náum ekki að stoppa þeir og klára eina í einu. Og hvernig á þá að vera hægt að taka jafn mikilvægar ákvarðanir og nú liggja fyrir hjá þér. Auðvitað getur þú það, það er ekki spurning. En stundum er gott að fá smá hjálp.
Ég vona að morgundagurinn verði þér betri
Ég mun senda þér fallega hugsun, vill ekki feykja þér út úr rúminu um miðja nótt 

Sporðdrekinn, 31.3.2008 kl. 01:49
Takk kærlega mínar elskulegu
Sporðdreki: jú þetta er reyndar alveg pæling. Hef einu sinni áður á ævinni átt tímabil sem var svo erfitt að ég var hætt að sofa og var með endalausan kvíðahnút í maganum. Þá leitaði ég til heimilislæknisins og fékk hjá honum svefntöflur og kvíðastillandi. Miðað við þá reynslu veit ég að slík lyf fara ekki illa í mig og þau hjálpuðu mikið á meðan ég þurfti á þeim að halda. Lenti heldur ekki í neinum vandræðum við að losa mig við þau aftur svo ég er ekkert hrædd við að nota þau aftur. Ég skoða þetta ef ekki fer að glitta í sterkari skímu í gegnum sortann
Er viss um að fallega hugsunin þín skilaði sér til mín í nótt, því ég svaf vel og mig dreymdi voðalega notalega.
Ein-stök, 31.3.2008 kl. 16:25
Ég vona að dagurinn sem eftir er nýtist þér sem best og nóttin verði þér sem ljúfust
Sporðdrekinn, 31.3.2008 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.