ein

Grátandi

Já já.. mín er búin að fella ófá tárin það sem af er þessum degi og líklega eiga þau eftir að vera fleiri. Ekki halda samt að ég sé svona niðurbrotin. Tárin eiga fyrst og fremst rætur að rekja til líkamlegrar vanheilsu. Vanheilsan hefur smá saman færst upp úr hálsinum og upp í höfuð þar sem hún kemur fram í miklu rennsli úr augum og nefi.

Ég á frekar erfitt með að horfa á tölvuskjá eða sjónvarpsskjá svona en læt mér nú samt ekki segjast - hvað annað á maður að gera í þessu standi? Ég hef semsagt varið morgninum í að horfa á gamlar videospólur. Ansi gaman. Horfði fyrst á First Knight - Sean Connery alltaf jafn hrikalega flottur kallinn Cool Svo dró ég fram Dirty Dancing. Rosalega langt síðan ég hef horft á hana. Hún var í miklu uppáhaldi hjá mér hérna einu sinni en núna verð ég svolítið vör við aulahrollinn inn á milli. Samt.. mjög gaman að horfa á hana. Táraflóðið jókst m.a.s. á áhrifamiklum stundum (get ekki alfarið kennt líkamlegum krankleika um) eins og þegar "Baby" gerði fullkomna lyftu með Johnny sínum og þegar hann söng fyrir hana ".. and I owe it all to you".. oh.. sniff, sniff. Woundering

Stundum þegar ég horfi á myndir í sjónvarpinu þá verð ég forvitin um einhverja leikara eða langar að vita meira um myndina og smelli mér þá á IMDB eða Wikipedia á netinu. Í þetta skiptið fór ég að velta fyrir mér leikkonunni sem leikur dansfélaga Johnnys (Patrick Swayze). Hugsaði með mér að ég hefði örugglega ekki séð hana í fleiri myndum og velti því fyrir mér hvað hefði orðið af henni. Þessi ágæta leikkona (meira samt söngkona og dansari) heitir Cynthia Rhodes og árið sem Dirty dancing kom út (1987) lék hún í myndbandi hjá tónlistarmanninum Richard Marx. Mér skilst að þetta sé fyrsta lagið sem hann sló í gegn með. Ekki fylgir sögunni hvort þau kynntust við tökurnar á myndbandinu en a.m.k. gifta þau sig í janúar 1989 og eignast sitt fyrsta barn í september sama ár (jú jú 8 ár í hjónabandi - öss). Cynthia lék í einni bíómynd eftir Dirty dancing en ákvað síðan að draga sig í hlé til að sinna móðurhlutverkinu. Þau Richard eiga í dag þrjá syni saman og allt virðist í lukkunnar velstandi hjá þeim. Gaman af því Grin Richard Marx varð líklega frægastur fyrir þetta hér á árum áður. Ég hlustaði ekki sjaldan á þetta yndislega lag. Fannst líka Richard Marx voðalega sætur enda var ég voðalega veik fyrir síðhærðum gaurum Tounge  Hann Richard er orðinn stutthærður í dag en ennþá voðalega sætur InLove Ef einhver hefur áhuga á að sjá eða vita meira um manninn þá er hægt að gera það hér og hér.

Í lokin; Richard Marx fékk Grammy-verðlaunin fyrir lag ársins, árið 2004. Það lag er hér, flutt af Luther Van Dross og.. ég fór aftur að gráta Blush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband